Stjörnur.is app for iPhone and iPad


4.9 ( 99 ratings )
Business Navigation
Developer: Já Spurl
Free
Current version: 1.0.0, last update: 7 years ago
First release : 17 Oct 2012
App size: 2.41 Mb

Ertu að leita að veitingastað á Akureyri, fatahreinsun í Garðabæ eða næsta apóteki? Stjörnur.is appið hjálpar þér að finna fyrirtæki eða þjónustuaðila í nágrenni við þig. Þú getur líka lesið ummæli um þjónustuaðila frá öðru fólki sem hefur prófað þjónustuna. Einnig getur þú skrifað þín eigin ummæli og í leiðinni hjálpað öðrum.

Stjörnur.is appið byggir á GPS staðsetningartækni og reiknar út staðsetningu þína og finnur fyrirtæki og þjónustuaðila í nær umhverfi. Þá getur þú einnig leitað upplýsinga um fyrirtæki eftir fjölda ummæla eða stjörnugjöf.

Appið byggir á þjónustu sem boðin er á vefnum Stjörnur.is, þar sem er að finna vettvang fyrir íslendinga til að gefa fyrirtækjum og þjónustuaðilum stjörnur. Stjörnur.is eru í eigu Já.

Ef þú hefur áhuga á frekari upplýsingum eða langar að koma ábendingum á framfæri bendum við á netfangið: [email protected]